by nord
1.11.2010 | 09:22
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fataherbergi, fataherbergi og aftur fataherbergi....
31.10.2010 | 21:58
....hvaða dömu dreymir ekki um fataherbergi? Eitthvern tíman ætla ég að eignast eitt fallegt fataherbergi. Fataherbergi minna mig alltaf á vinkonur okkar allra úr Sex & the City :)En á netvafrinu í dag fann ég eitt fataherbergi hannað að sjálfri Kate Moss fyrir Topshop.
Myndirnar fann ég á Topshop.com
**Selma**
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Búðu til þinn eigin sófa og nýttu plássið
30.10.2010 | 12:42
Ég hef lengi verið skotin í heimatilbúnum sófum. Það gefur svo marga möguleika og líka tækifæri til að nýta plássið vel. Málið er að smíða sófann eða nota t.d. bretti. Og sitja síðan dýnu ofan á og sauma eitthvað fallegt efnum utan um. Ég mæli svo með fullt að stórum púðum allskyns litum til að gera hann kósý ;) Hérna eru nokkrar myndir sem ég fann svona til að gefa ykkur góðar hugmyndir :)
Hérna er bókahilla undir svo plássið er vel nýtt og kemur mjög vel út.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Heillandi villa í Kaupmannahöfn
29.10.2010 | 22:30
Rakst á þessa einstaklega fallegu villu á Fredriksberg í Kaupmannahöfn. Hönnuðurinn er Katrine Martensen-Larsen. Hún hannaði villuna að innan fyrir sjö manna fjölskyldu. Sérstaklega var hugsað um að hún væri hugguleg, flott og nóg pláss fyrir börnin. Hver vill ekki búa í svona villu??
Og líka á besta stað ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Villervalla
29.10.2010 | 22:01
Nýjasta æðið á heimilinu er sænska merkið Villervalla :) Yndislega mjúk og falleg barnaföt. Frábær sænsk barnaföt á góðu verði. Eiturefnalaus og lífræn.
Mæli með að þið kíkið á þau. Þau fengust í Í Grænni lautu á Laugarveginum en fást núna í Róló í Glæsibænum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)